Lausnir.
Eins og með flest þá erum við alla-vega, sumt hentar öðrum og öðrum ekki.
En hér tel ég upp það sem hefur hjálpað mér.
a. Námskeið, ég fór á 3 daga námskeið í Bretlandi hjá UKPT það breytti miklu, fróðleikur-æfingar- og að hitta aðra í sömu sporum. www.ukpt.org.uk
b. Búnaður, bara það að vita af möguleikanum að það sé hægt að pissa án þess að nokkur viti af því, róar hugann, þarf yfirleitt ekki að nota, nóg að vita að það til plan “B”.
Sjá flipa „Búnaður“.
c. Spjallborð á netinu t.d. Reddit.com og skrifa í leit t.d. “Shy bladder”, eða “r/Paruresis”.
d. Lyf, eina sem ég veit um eru skammvinn kvíðalyf sem slá á kvíða í smá stund og gæti hjálpað þar sem kvíðinn fer aðeins niður, ekki víst að geta pissað, en líklegra ef kvíðinn minnkar, t.d. Sobril sem virkar fljótt, er þríhyrningslyf = má ekki keyra.
e. Þvagleggur, ef allt bregst þá er hægt að setja upp þvaglegg, best að hafa samband við t.d. nýrnadeild á LSH og fá að hitta hjúkrunarfræðing sem fer yfir þetta með manni.
Ég hef ekki þurft að nota þetta, en bara að vita af þessu og hafa þetta með sér, hjálpar, þú veist þá að það er til lausn ef allt annað bregst.
(Þvagleggur = mjó, sótthreinsuð slanga með sleipiefni þrædd upp blöðru, má ekki snerta slöngu með fingrum, hægt að kaupa í apótekum ).
Annað.
Stór hluti okkar sem er að fást við „feimna blöðru“ er einnig að fást við ýmsa fylgifiska eins og: Kvíða – Depurð – Þunglyndi – Athyglisbrest – Ofvirkni – hinar ýmsu fóbíur, eins t.d. Innilokunarkennd, og alla vega Áráttur, þannig að oft er mikið verk að vinna,
Og eftir að hafa prófað alla vega, þá er það sem hefur hjálpað mér mest.
a. Námskeið í Bretlandi.
b. Búnaður. Að vita að það sé til plan B, róar hugann.